Bókun og undirbúningur
Þú velur tíma og svarar stuttum spurningum. Ég fer yfir svörin og kem undirbúin.
Skýr greining og Vegvísir fyrir næsta skref
Þú ert með eitthvað sem þú vilt taka lengra. En þú ert mögulega of nálægt því sem er að gerast til að sjá hvað er raunverulega að tefja þig eða hvað þarf að gerast næst.
Norðurstjarnan er persónuleg greining fyrir konuna sem er komin af stað en sér ekki lengur heildarmyndina innan frá.
90 mínútna einkafundur · Persónulegur Vegvísir · 90 daga eftirfylgni
Sumarverð 35.000 kr. til og með 31. ágúst · Takmarkaður fjöldi bókana · Verð frá 1. september: 45.000 kr.
Þekkir þú þetta?
Þú hefur reynsluna, hugmyndirnar og löngunina til að byggja eitthvað sem skiptir máli. Samt er eins og þú komist ekki almennilega áfram.
Þú þarft ekki meiri upplýsingar. Þú ert komin með nóg af þeim.
Það sem vantar er skýr sýn á stöðuna og manneskja sem þú treystir til að hjálpa þér að sjá hvað skiptir máli næst.
Kostnaðurinn við að bíða
Dýrasti hlutinn er ekki alltaf peningurinn. Það er tíminn sem fer á meðan þú ert enn að reyna að sjá þetta ein.
Ég segi þér ekki fyrirfram hvað sé að. Ég skoða stöðuna, greini hvað skýrir heildarmyndina og segi þér hreinskilnislega hvað ég sé.
Norðurstjarnan
Þú kemur ekki í Norðurstjörnuna til að fá fleiri hugmyndir eða almenn ráð. Þú kemur með stöðuna eins og hún er: það sem þú ert að byggja, það sem þú hefur prófað og það sem þú nærð ekki að sjá skýrt ein.
Ég kem með utanaðkomandi sýn, þekkingu á íslenska markaðnum og margra ára reynslu af því að sjá muninn á vandamálinu sem birtist og því sem er raunverulega að halda þér á sama stað.
Markmiðið er ekki að laga allt á einum fundi. Það er að komast að skýrri niðurstöðu um hvað skiptir máli núna, hvað má bíða og hvert þú stefnir næstu 90 daga.
Þú ferð ekki út með fleiri hugmyndir. Þú ferð út með ákvörðun, stefnu og Vegvísi sem er byggður á þinni stöðu.
Greiningin á bak við Norðurstjörnuna
Norðurstjarnan byggir á greiningarferli sem ég hef þróað í raunverulegri vinnu með konum á ólíkum stigum.
Ég tek ekki fyrsta vandamálið sem þú nefnir og geri ráð fyrir að þar liggi svarið. Ég ber saman það sem þú segir, það sem þú hefur prófað og það sem hefur raunverulega gerst, prófa hvað skýrir heildina og nota síðan reynslu mína til að meta hvað skiptir máli núna og hvað kemur næst.
Það sem þú segir, það sem þú hefur prófað og það sem hefur raunverulega gerst.
Ég leita að mynstrinu, mótsögnunum og því sem heldur áfram að koma upp á ólíkum stöðum.
Ég prófa fleiri en eina skýringu og útiloka það sem nær ekki utan um heildarmyndina.
Þar bæti ég við minni reynslu, þekkingu á íslenska markaðnum og því sem ég hef séð í fyrirtækjum hér heima og erlendis.
Niðurstaðan verður skýr stefna fyrir næstu 90 daga: hvað kemur fyrst, hvað bíður og hverju þú sleppir.
Kerfið hjálpar mér að sjá mynstrin. Það tekur ekki ákvörðunina. Ég fer sjálf yfir greininguna og Vegvísinn áður en þú færð hann.
Ferlið
Þú velur tíma og svarar stuttum spurningum. Ég fer yfir svörin og kem undirbúin.
Við eigum 90 mínútna einkafund á Zoom. Við tvær. Við förum beint í það sem skiptir máli.
Innan 48 klukkustunda færðu persónulegan Vegvísi með skýrri stefnu og réttri röð.
Vikulegar vinnubækur og eftirfylgni hjálpa þér að halda fókus og vinna áfram.
Sumarverð 35.000 kr. · Verð hækkar í 45.000 kr. 1. september
Vitnisburðir
„Núna er ég öruggari með mig og það sem ég er að gera. Ég hef gert allt sem Lilja lagði til og vinn hlutina öðruvísi en ég hefði gert. Líklega væri ég enn að hjakka í sama farinu eða búin að missa trúna á verkefninu ef ég hefði ekki leitað til hennar.“
Sigga Gréta
„Eftir fundinn fann ég að ég væri í öruggum höndum hjá manneskju sem vissi nákvæmlega hvað hún var að gera og ynni fyrir mig af heilindum. Ég sé nú skýrar hvað ég á að gera við tímann minn og hef þegar mælt með Norðurstjörnunni við vinkonur mínar.“
Svava Bjarnadóttir
Vitnisburðir
„Það sem gerir samstarfið sérstaklega dýrmætt er sköpunarkrafturinn hennar, útsjónarsemin og hvað hún er skemmtileg í samskiptum. Hún finnur lausnir, lyftir hugmyndum upp á hærra plan og skilar alltaf fallegri og vandaðri vinnu. Ég treysti henni fullkomlega.“
Dögg StefánsLífsþjálfi og stofnandi Sjálfsræktarakademíunnar
„Ég er með fullt af hugmyndum, reynslu og þekkingu á mínu sérsviði en hef ekki tíma, þolinmæði eða þekkingu á öllu því sem þarf til að koma þessu á framfæri. Lilja hefur hjálpað mér að umbreyta fyrirtækinu mínu og koma hugmyndunum í farveg.“
Hugrún LindaStreituþjálfun og ráðgjöf
Fjárfesting
Norðurstjarnan er fyrsta skrefið út úr hringnum sem þú hefur verið föst í.
Norðurstjarnan inniheldur

Dýpra samstarf
Ég vinn einnig með konum í afmörkuðu einkasamstarfi og á VIP-dögum á Íslandi, Spáni eða annars staðar þar sem hentar. Ef þú vilt skoða hvað við gætum gert saman, hafðu samband.
Ræða mögulegt samstarfLokaorð
Þú þarft að sjá nógu skýrt til að taka næstu ákvörðun.
Þú þarft ekki meiri tíma til að hugsa þetta. Þú þarft skýra sýn á hvað kemur næst.
Bóka NorðurstjörnunaSumarverð 35.000 kr. til og með 31. ágúst · Takmarkaður fjöldi bókana · Verð frá 1. september: 45.000 kr.